Lífið í Leuven

Lengi getur vont versnað

Monday, February 07, 2005

Vá, nú kom Guðmundur mér aldeilis á óvart og efa ég að ég hafi verið sú eina. Gott framtak mundi minn. Enn einu sinni er kominn mánudagur og það gerir það að verkum að maður starfar tvöfallt hægar en aðra daga. Er núna að horfa á endursýningu úrslitaleiks HM í handbolta, spánverjar vinna hann eftir 20 sek með yfirburðum.
Þessi vika verður nú voða þægileg, hún er einungis 3 dagar og á morgun þarf ég bara að fara í 3 tíma og þar af einn danstíma. Eintóm gleði. Á fimmtudaginn er nefninlega árshátíð í skólanum og í tilefni hennar er frí fimmtudag og föstudag :)
Svo styttist óðum í það að hún Þórhildur komi heim frá útlandinu og komi heimilislífinu í samt lag og færir ljós inn í skammdegið, mikið hlakka ég til.
Ég er farin að halda að Tóta og Matti séu bara að gabba okkur, þau eru örugglega ekkert að fara að flytja og 1. maí koma þau og segja "TEKIN". Þau eru allaveganna ekki enn flutt.
Síðasta helgi var fremur róleg og góð og kvarta ég ekki undan henni.
Næstu helgi verða svo hinir sívinsælu músikantar Gvendur og Eiki að þeyta skífum á rauða og spurning um hvort að það sé ekki bara ágætis upplyfiting að hlýða á þá. En nú er hafin glíma í sjónvarpinu sem sjálsagt leiðinlegasta sjónvarpsefni sem hægt er að bjóða upp á ásamt skák og maður er nefndur en ætli maður láti sig ekki hafa það að horfa.
Þangað til næst
Bless Kex

0 Comments:

Post a Comment

<< Home