Lífið í Leuven

Lengi getur vont versnað

Wednesday, December 13, 2006

Væl og volaæði

Þá er komið að því. Ég fer í mitt fyrsta háskólapróf núna klukkan hálf tvö. Hef ekki eirð í mér til að lesa lengur og veit ekki alveg hvað skal til bragðs taka. (taka hár úr hala?) En ég er semsagt að fara í próf eftir smá, veit ekki hvað ég kann og engan veginn hvað bíður mín. Ég var líka svo óstjórnlega heppinn að ég fékk eitthvern skemmtilegan augnsjúkdóm í fyrradag svo nú sit ég með rautt auga sem er við það að fara að poppa út úr augntóftinni. Væri nú skemmtilegt ef það gerðist á prófi:) Stressið hefur ekki komið af jafnmikilli hörku þetta ár og undanfarin ár samt er ég með plástur á puttum, skýtið.
Annað sem pirrar mig núna er að ég er með Hjólin á strætó hring hring hring hring hring hring..... á heilanum. Það er nú vegna þess að Mundi er kominn í jólafrí og þá kemur maður að sjálfsögðu syngjandi heim. Mundi valdi þetta lag í þetta skiptið sem er alveg óskiljanlegt.
En þetta verður vonandi fljótt búið, þangað til næst...

4 Comments:

Blogger Þórhildur Hagalín said...

<$BlogItemCommentCount$> Comments:

  • At 12:07 PM, Blogger Þórhildur Hagalín said…

    til hamingju med prófalok og jólafrí mundi bró og gangi thér vel í thinni törn hildur frae,
    ást og kossar á Kára

     
  • Anonymous Anonymous said...

    <$BlogItemCommentCount$> Comments:

    • At 2:08 PM, Anonymous Anonymous said…

      Hildur fræ, haha, mér líst vel á það. Hér eftir ert þú litla fræ. DJÓÓÓÓK! Fyrirgefðu elskan mín ég meinti þetta ekki. Frænkan þín bauð bara upp á þetta.
      Hvernig gengur annars? Ég sé í anda allar kaffihúsaferðirnar og kokteilakvöldin sem við ætlum að halda í desember og janúar og... :0P
      Ef þig langar til að heyra eitthvað annað en Munda að syngja leikskólalög þá geturðu komið heim til mín og heyrt bróður minn taka sína reglulegu John Frusciante söngstund. Hann hefur óbilandi trú á eigin hæfileikum. Ég er allavega komin með nóg svo þú mátt koma og taka við af mér.

       
    • Blogger Tóta said...

      <$BlogItemCommentCount$> Comments:

      • At 11:52 AM, Blogger Tóta said…

        Hey hvernig gekk svo í prófinu?

         
      • Anonymous Anonymous said...

        <$BlogItemCommentCount$> Comments:

        • At 9:30 AM, Anonymous Anonymous said…

          Obbosí, Mamma er búin að vera svo kertaóð að hún er búin að klára allar eldspýturnar. Búin að ná í steina og ætla að athuga hvort að ég geti búið til eld. Ef mér tekst ekki að kveikja á kerti þá sendi ég bara góða strauma.

           

        Post a Comment

        << Home