Lífið í Leuven

Lengi getur vont versnað

Monday, September 18, 2006

Þetta var nú aldeilis skemmtilegur leikur og þakka ég öllum þeim sem tóku þátt.
Helga Þórey bar þó sigur úr bítum og leifðum við henni að velja sér verðlaun.
Hún valdi pizzuveislu og samverustund með íbúum kárastígsins og verða verðlaunin veitt í kvöld.

Það kom til mín maður áðan og setti fullt fullt af sjónvarpsstöðvum í sjónvarpið þeirra tótu og matta. Okkur ætti því ekki að leiðast þó svo við séum ekki með nefið ofan í bókum allar stundir en okkur hættir til við að vera það:)

Helgin leið voða hratt og eyddi ég lunganu úr laugardeginum við gróðursettningu sem kostaði mig massamarblett á kálfan. Vegna þess er nú ennþá erfiðara að labba þennan 90 gráðu halla sem liggur á leið minni heim úr skólanum. Mig dreymir því um að kaupa mér mótorknúið farartæki, kannski hlaupahjól til að komast leiðar minnar. Hættan er nefninlega við því að ef ég fer á hjóli þá endi ég á höfðinu úti á miðri miklubraut fyrir utan það að drífa ekki heim. En ég læt tvo jafnfljóta duga enn um sinn.

Við látum þetta duga í bili
Hildur og fiðurféð á Kára

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

<$BlogItemCommentCount$> Comments:

  • At 5:52 PM, Anonymous Anonymous said…

    Aldeilis lék láni við Helgu Þórey, hver er svo næsti maður til leiks?

     
  • Anonymous Anonymous said...

    <$BlogItemCommentCount$> Comments:

    • At 10:02 PM, Anonymous Anonymous said…

      Þú getur fengið þér rafskutlu! Rafskutlan hefur verið vinsæl meðal eldri borgara hér á landi og vakið mikla lukku. Kostar ekki nema 100.000 krónur

       
    • Blogger Þórhildur Hagalín said...

      <$BlogItemCommentCount$> Comments:

      • At 7:59 AM, Blogger Þórhildur Hagalín said…

        rafskutla er skemmtilegt ord. ég vil líka meira hver er madurinn!
        kossar á kára

         
      • Anonymous Anonymous said...

        <$BlogItemCommentCount$> Comments:

        • At 9:24 AM, Anonymous Anonymous said…

          Hvernig fór svo Miss Italia 2006??

          Takk fyrir mig..

           
        • Anonymous Anonymous said...

          <$BlogItemCommentCount$> Comments:

          • At 8:30 AM, Anonymous Anonymous said…

            ég gleymdi mér alveg í flutningum... kom ykkur á sporið þó. Vil meira svona...

             
          • Anonymous Anonymous said...

            <$BlogItemCommentCount$> Comments:

            • At 5:21 PM, Anonymous Anonymous said…

              hvad meinaru med fullt af sjonvarpsstodvum ? er eitthvad misjafnt i gangi ?
              Tek undir meira hver er madurinn.
              kvedja Tota

               

            Post a Comment

            << Home